Beethoven í vorskapi
Manage episode 426383939 series 3031432
Innhold levert av RÚV. Alt podcastinnhold, inkludert episoder, grafikk og podcastbeskrivelser, lastes opp og leveres direkte av RÚV eller deres podcastplattformpartner. Hvis du tror at noen bruker det opphavsrettsbeskyttede verket ditt uten din tillatelse, kan du følge prosessen skissert her https://no.player.fm/legal.
Tónskáldið Ludwig van Beethoven var mikill náttúruunnandi og fór oft í langar gönguferðir um skóga og engi. Hlustendur fá að kynnast Beethoven í vorskapi, leiknar verða tónsmíðar eftir hann sem tengjast vori og guðsgrænni náttúrunni. Meðal annars verða fluttir þættir úr fiðlusónötu Beethovens nr. 5 sem kölluð er Vorsónatan, sinfóníu hans nr. 6 sem nefnist Pastoralsinfónían og píanósónötu nr. 15 í D-dúr sem kölluð er Pastoralsónatan. Orðið „Pastorale" þýðir „hjarðljóð" og er oft notað um tónlist sem á að lýsa fagurri náttúru. Einnig verða fluttir nokkrir vorsöngvar eftir Beethoven. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
…
continue reading
11 episoder